Hefði beðið eftir þessum degi í sex ár
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Giorgi Dikhaminjia (Egill Bjarni Friðjónsson)

Georgíski landsliðsmaðurinn, Giorgi Dikhaminjia sneri aftur til Íslands í sumar og gekk í raðir KA eftir að félagið hans í Póllandi, KS Azoty-Pulawy sagði upp samningum við alla leikmenn félagsins vegna fjárhagserfiðleika.

Dikhaminjia var nefnilega leikmaður HK á undirbúningstímabilinu, sumarið 2019 en HK sagði upp samningi hans áður en tímabilið hófst. HK var þá nýliði í Olís-deildinni undir stjórn Elíasar Más Halldórssonar. Hann var því að snúa aftur til Íslands með komu sinni í KA.

Giorgi og liðsfélagar hans í KA mættu HK í 4.umferð Olís-deildarinnar á gamla heimavelli Giorgi í Kórnum síðastliðið föstudagskvöld. Þar sem KA hafði betur 31-27. Georgíumaðurinn skoraði fjögur mörk í leiknum fyrir KA og gat fagnað vel eftir leik.

Eftir leik sendi hann síðan pillu á HK-inga í Instagram sögu sinni þar sem hann sagðist hafa beðið eftir þessu degi í sex ár og bætti við að þeir vita sem vita.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top