Hvorki meira né minna en 77 mörk – Þetta er alltof mikið
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Ólafur Rafn Gíslason ((Egill Bjarni Friðjónsson)

Heil umferð fór fram í efstu deild karla á fimmtudagskvöldið þegar 5.umferðin fór fram. Á Akureyri fóru fram tveir leikir nánast á sama tíma þar sem mikið var skorað í báðum leikjum. Þór og Stjarnan gerðu jafntefli 34-34 en nánast á sama tíma mættust KA og ÍR.

KA var 22-18 yfir í hálfleik og leikurinn endaði með 41-36 sigri KA. Í nýjasta þætti Handkastsins var farið yfir leikinn og stöðu liðanna í deildinni eftir fimm umferðir.

,,Þetta eru hvorki meira né minna en 77 mörk,” sagði Stymmi klippari án þess að hika í útreikningnunum.

,,Þetta er alltof mikið. Það var mikið skorað í öllum leikjunum en í þessum leik, 41-36,” bætti Ásgeir Gunnarsson einn af gestum þáttarins við áður en Stymmi klippari tók aftur til máls.

,,Á sama tíma átti Ólafur Rafn Gíslason markvörður ÍR sennilega sinn skásta leik í vetur með 15 varða bolta. Samt nær hann bara 28% markvörslu, af því hann fær á sig 53 skot í leiknum.“

Davíð Már Kristinsson annar af gestum þáttarins segir þetta vera galnar tölur.

,,ÍR-liðið bíður upp á þetta og þeir keyra alveg linnulaust í bakið á KA í leiknum og stjórna svolítið hraðanum.”

Stymmi benti þó á að ÍR virðast ekki ráða við þennan hraða. ÍR er á botni efstu deildar með eitt stig að loknum fimm umferðum á meðan KA er með sex stig í 4.sæti deildarinnar.

,,KA svarar með krók á móti bragði og Andri Snær er að búa til helvíti skemmtilegan hóp fyrir norðan. Maður sér að það er kominn andi í þá. Andri hefur náð að búa til þvílíkan “Deyja fyrir klúbbinn”, nei fyrigefðu…”

Umræðan um leik KA og ÍR hefst eftir rúmlega átta mínútna þátt.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top