Bjarni Ófeigur frábær í kvöld (Egill Bjarni Friðjónsson)
KA kom í heimsókn í Reykjavík í kvöld og mætti Íslandsmeisturum Fram á heimavelli þeirra í Úlfarsárdalinn. Fyrir leik voru KA menn með sex stig á meðan Fram voru með fjögur stig. KA menn voru gríðarlega öflugir í fyrri hálfleik og voru sex mörkum yfir í hálfleik, 13-19. Heimamenn reyndu hvað þeir gátu að minnka muninn niður og jafna leikinn en á endanum voru KA menn of sterkir fyrir Fram og sóttu frábæran útisigur, lokastaðan 28-32. KA tyllir sér í þriðja sæti deildarinnar og er aðeins tveimur stigum frá efsta sæti deildarinnar. Frábær byrjun hjá liðinu og nýjum þjálfara liðsins. Bruno Bernat átti fínan leik í marki liðsins með 33,3% markvörslu en besti maðurinn vallarins var Bjarni Ófeigur Valdimarsson en hann skoraði tólf mörk úr fimmtán skotum. Hjá Fram var Arnór Máni Daðason fínn í markinu með 32,3% markvörslu og markahæstir í liðinu voru nýi "gamli" maðurinn Þorsteinn Gauti Hjálmarsson sem er aftur kominn heim í Fram og Rúnar Kárason en báðir skoruðu fimm mörk.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.