Flensburg með enn einn sigurinn
(CHRISTIAN CHARISIUS / dpa Picture-Alliance via AFP)

Kevin Møller ((CHRISTIAN CHARISIUS / dpa Picture-Alliance via AFP)

Tveir leikir voru á dagskrá í dag í þýsku úrsvalsdeildinni og var einn Íslendingur í eldlínunni.

Fyrri leikur dagsins fór fram í Lemgo borg þegar Lemgo tók á móti Hauk Þrastar og liðsfélögum í Rhein-Neckar Löwen.

Lemgo voru með yfirhöndina allan leikinn og var staðan í hálfleik 13-9. Þeir héldu forystunni og unnu 3 marka sigur 25-22. Haukur Þrastarson skoraði 3 mörk og lagði upp 4 mörk. Atkvæðamesti leikmaður vallarins var Jannik Kohlbacher með 6 mörk í liði Löwen.

Seinni leikur dagsins fór fram þegar að Eisenach bauð toppliði deildarinnar Flensburg í heimsókn. Í fyrri hálfleik var mikið skorað og höfðu Flensburg yfirhöndina með þremur mörkum 20-23. Í seinni hálfleik reyndu Eisenach að gera atlögu á endurkomu en Flensburg endurheimtu alltaf forystuna. Leikurinn endaði með sex marka sigri Flensburg 32-38.

Atkvæðamesti leikmaður vallarins var Emil Jakobsen með 11 mörk úr 11 skotum. Flensburg sitja nú á toppi deildarinnar með 16 stig.

Einn leikur fer fram á morgun þegar Göppingen bíður Bergischer í heimsókn.

Úrslit dagsins:
Lemgo - Rhein Neckar Lowen 25-22
Eisenach - Flensburg 32-38

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top