Tryggvi Þóris fær annað tækifæri til að vinna á Íslandi
Elverum)

Tryggvi Þórisson (Elverum)

Tryggvi Þórisson er mættur aftur til Íslands annað árið í röð með sínu liði í Evrópudeildinni en norska félagið Elverum mætir Fram í 2.umferð Evrópudeildarinnar í Úlfarsárdalnum í kvöld.

Tryggvi Þórisson gekk í raðir Elverum frá sænska félaginu Savehof í sumar en Tryggvi kom einnig hingað til lands með Savehof í fyrra þegar liðið mætti FH í Kaplakrika.

FH vann Savehof með fjórum mörkum 34-30 í Kaplakrika í fyrra en nú er Tryggvi mættur aftur til Íslands til að etja kappi við Íslands- og bikarmeistara Fram.

Nú er stóra spurningin hvort Tryggvi geti fagnað sigri með sínum félögum í kvöld en leikurinn hefst klukkan 18:45 og er sýndur í beinni á Livey.

Tryggvi er að koma til baka eftir erfið veikindi og því spurning í hversu stóru hlutverki hann verður í leiknum í kvöld en hann komst ekki á blað í Kaplakrika í fyrra með Savehof.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top