Hákon Garri Gestsson ((Sigurður Ástgeirsson)
Hvíti Riddarinn fékk Selfoss 2 í heimsókn í kvöld í Myntkaup höllina í Mosfellsbæ í Grill 66 deild karla. Hress styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina - Í tilefni þess fá allir hlustendur og lesendur Handkastsins 2 fyrir 1 af öllum boozt á Hressbarnum út október. Hress er staðsett á Dalshrauni 11 í Hafnarfirði. Verði ykkur að góðu.
Selfyssingar byrjuðu leikinn betur og voru alltaf skrefi á undan. Í hálfleik var staðan 16-21 fyrir Selfoss.
Í seinni hálfleik héldu þeir áfram uppteknum hætti og var sigurinn aldrei í hættu. Sannfærandi og öruggur sigur hjá gestunum frá Selfossi.
Adam Ingi Sigurðsson var markahæstur hjá Hvíta Riddaranum með 10 mörk. Sölvi Þór Daníelsson varði 9 skot.
Hjá Selfossi var Hákon Garri Gestsson markahæstur með 14 mörk. Ísak Kristinn Jónsson varði 13 skot í markinu hjá þeim.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.