Andri Már Rúnarsson (Kristinn Steinn Traustason)
Andri Már Rúnarsson, leikmaður Erlangen í Þýskalandi hefur verið kallaður inn í íslenska hópinn. Hann kemur inn fyrir Hauk Þrastarson en hann meiddist í leik gærdagsins gegn Þýskalandi. Íslenska landsliðið tapaði með ellefu marka mun 42-31 í æfingaleik gegn Þýskalandi í Nurnberg í gærkvöldi en þjóðirnar mætast aftur á sunnudaginn. Andri kemur til móts við hópinn í dag en framunan er undirbúningur fyrir seinni æfingaleikinn gegn Þýskalandi. Sá leikur fer fram á sunnudag klukkan 16:30 í Munchen og er í beinni útsendingu á RÚV. Haukur Þrastarson virtist hafa meiðst aftan í læri í leiknum í gær en hann var kominn með klaka á vafning á lærið undir lok leiks á varamannabekk Íslands. Það kom mörgum á óvart að Andri Már hafi ekki verið valinn í landsliðshópinn fyrir þetta verkefni en nú er hann kominn í hópinn. Haukur er annar leikmaður landsliðsins sem meiðist í landsliðsverkefninu en Sigvaldi Björn Guðjónsson leikmaður Kolstad meiddist aftan í læri á æfingu liðsins fyrr í vikunni og þurfti að draga sig úr hópnum. Teitur Örn Einarsson kom inn í hópinn í hans stað. Handkastið gerði upp leik Íslands og Þýskalands í hlaðvarpsþætti sínum í morgun. Hægt er að hlusta á þáttinn hér að neðan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.