Eyþór Waage framlengir við ÍR
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Eyþór Ari Waage (ÍR)

Vinstri hornamaðurinn, Eyþór Ari Waage hefur framlengt samningi sínum við ÍR til ársins 2027. Þetta tilkynnti Breiðholtsliðið á samfélagsmiðlum sínum fyrir helgi.

Eyþór er fæddur árið 1999 og er fæddur og uppalinn ÍR-ingur. Eyþór hefur leikið vel með ÍR sem situr á botni Olís-deildarinnar eftir átta umferðir og hefur skorað 27 mörk í þeim leikjum.

,,Það eru sannkölluð gleðitíðindi að Eyþór haldi tryggð við heimahagana enda mikilvægur hlekkur innan sem utan vallar," segir í tilkynningunni frá ÍR.

ÍR mætir ÍBV í 9.umferð Olís-deildar karla á fimmtudagskvöldið klukkan 18:30 í Skógarselinu.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Post Views: 113
Scroll to Top