Í gær gaf Daikin handball út lið 11.umferðar í þýsku úrvalsdeildinni, en staðan í deildinni er hnífjöfn þar sem Flensburg situr á toppi deildarinnar með 20 stig en Magdeburg fylgir fast á hæla þeirra með 19 stig en með leik til góða. Svona lítur lið 11.umferðar út: Dejan Milosavljev(Füchse Berlin) Dejan Milosavljev markvörður þýskalandsmeistara Füchse Berlin átti góðan leik þegar lið hans sigraði Blæ Hinriks og félaga í Leipzig. Milosavljev varði 19 bolta(42.2%) í marki Berlin. August Pedersen(Hannover) August Pedersen leikmaður Hannover átti góðan leik þegar lið hans vann Lemgo með flautumarki þar sem einmitt Pedersen skoraði markið. August Pedersen skoraði 10 mörk úr 11 skotum. Nikola Bilyk(Kiel) Nikola Bilyk leikmaður Kiel og Austuríska landsliðsins átti góðan leik þegar lið hans sigraði Bergischer á heimavelli. Bilyk skoraði 8 mörk og gaf 2 stoðsendingar Elias á Skipagøtu(Kiel) Elias á Skipagøtu átti enn einn stórleikinn þegar lið hans Kiel sigraði Bergischer á heimavelli. Elias skoraði 14 mörk og gaf 4 stoðsendingar. Dainis Kristopans(Melsungen) Lettneski risinn Dainis Kristopans liðsfélagi Arnars Freys í Melsungen átti fínan leik þegar að Melsugen bar sigur af hólmi gegn Minden. Kristopans skoraði 3 mörk og gaf 3 stoðsendingar. Fredrerik Bo Andersen(Hamburg) Fredrerik Bo Andersen hægra hornamaður Hamburg átti hinn fínasta leik þessa umferðina, þegar hann skoraði 6 mörk í tapi gegn Flensburg. Maciej Gebala(Erlangan) Maciej Gebala liðsfélagi Viggó Kristjáns og Andra Rúnars átti fínan leik þegar að lið hans Erlangan vann Eisenach með eins marks mun. Gebala skoraði 3 mörk úr 3 skotum

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.