Harðverjar með 10 marka sigur á Ísafirði
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Andri Snær Andersen - Haukur Leó Magnússon - HBH (Eyjólfur Garðarsson)

Í dag mættust Harðverjar og HBH frá Vestmannaeyjum á Torfnesi á Ísafirði í Grill 66 deild karla.

Heimamenn höfðu gríðarlega yfirburði í fyrri hálfleik og var þetta leikur kattarins að músinni. Gríðarlega mikið var skorað og var staðan 24-12 þegar gengið var til búningsherbergja. Harðarmenn léku einfaldlega á alls oddi og sýndu sínar bestu hliðar.

Í seinni hálfleik slökuðu þeir lítið á og héldu sér vel við efnið. HBH náði mest að minnka niður í 8 mörk en nær komust Eyjapeyjarnir ekki. Ungum strákum eins og Pétri Þór Jónssyni og Axel Vilja Bragasyni var hleypt inn á hjá Herði og skoruðu þeir báðir 2 mörk á stuttum tíma. Lokatölur urðu 10 marka sigur 37-27.

Hjá Herði var Endnjis Kusners í aðalhlutverki og setti hann 9 mörk. Stefán Freyr og Arturs Kugis vörðu samtals 14 skot.

Hjá HBH var Ívar Bessi Viðarsson markahæstur með 10 mörk. Markvarslan skilaði þeim 7 boltum vörðum.

Sjáðu stöðuna í deildinni

Hress styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina - Í tilefni þess fá allir hlustendur og lesendur Handkastsins 2 fyrir 1 af öllum boozt á Hressbarnum út október. Hress er staðsett á Dalshrauni 11 í Hafnarfirði. Verði ykkur að góðu.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top