Austurríska stórskyttan Nikola Bilyk hefur ákveðið að söðla um næsta sumar og yfirgefur Kiel að loknu þessu tímabili. Nikola hefur skrifað undir samning við svissneksa liðið HC Kirens-Luzern sem leikur einmitt í sama riðli og Fram í Evrópudeildinni og vann Fram á dögunum í tvígang. Nikola gengur til liðs við Kirens-Luzern í næsta sumar. Nikola hefur verið í herbúðum Kiel síðan 2016 og verður að segjast að þetta er ansi metnaðarfullt hjá Kirens-Luzern og mikil viðurkenning fyrir svissnesku deildina. Það er því ljóst að Óðinn Þór Ríkharðsson og félagar í Kadetten fá aukna samkeppni um svissneska meistaratitilinn á næsta ári en HC Kriens hafa styrkt sig vel undanfarið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.