Andri Erlings tók yfir leikinn
IHF)

Einar Ingi Hrafnsson og Ásbjörn Friðriksson voru virkilega hrifnir af frammistöðu Andra Erlingssonar leikmanns ÍBV í sigri liðsins gegn HK í 12.umferð Olís-deildar karla í síðustu viku.

Farið var yfir hans frammistöðu í Handboltahöllinni í Sjónvarpi Símans og afar athyglisverða fellu hans er hann virtist fella liðsfélaga sinn í yngri landsliðinu, Ágúst Guðmundsson leikmann HK viljandi.

,,Hann er í undirhandarskotunum, hann er í gegnum brotunum og hann er að stökkva upp auk þess er að spila leikmennina uppi. Hann var algjörlega frábær. Hann tók yfir leikinn í seinni hálfleiknum,” sagði Einar Ingi Hrafnsson um Andra Erlingsson.

,,Það er jafnt þegar níu mínútur eru eftir af leiknum og þá mætir hann og neglir síðasta naglann í HK-ingana,” bætti Einar Ingi við.

ÍBV heimsækir Stjörnuna heim í kvöld klukkan 17:00 í 13.umferð Olís-deildar karla.

Umfjöllunina má sjá hér að neðan.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top