Rúnar tekinn við Wetzlar – Núverandi staða erfið
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Rúnar Sigtryggsson hefur verið ráðinn þjálfari þýska handknattleiksliðsins HSG Wetzlar. Momir Ilic hætti með liðið í gær og félagið hefur nú tilkynnt Rúnar sem nýjan þjálfara liðsins.

Wetzlar er í næst neðsta sæti þýsku úrvalsdeildarinnar með einungis fimm stig, jafn mörg stig og Leipzig sem situr á botni deildarinnar. Rúnari Sigtryggssyni var sagt upp störfum hjá Leipzig í lok síðasta tímabils en er nú tekinn við liðinu sem berst við Leipzig um áframhaldandi veru í þýsku úrvalsdeildinni. Tvö lið falla niður um deild í þýsku úrvalsdeildinni.

Fyrsti leikur Rúnars með liðinu verður gegn Þýskalandsmeisturunum í Fuchse Berlín á sunnudaginn næstkomandi klukkan 15:30.

,,Ég hef fylgst mjög náið með Bundesligunni undanfarna mánuði og hef einnig séð nokkra leiki HSG Wetzlar. Liðið hefur nægan möguleika til að halda sér í Bundesligunni. Þess vegna er ég svo ánægður að við náðum saman svona fljótt. Ég þurfti ekki að hugsa mig tvisvar um áður en ég tók að mér þetta hlutverk. Vissulega er núverandi staða erfið, en ég er sannfærður um að við munum finna leið okkar úr fallsætinu,“ segir Rúnar Sigtryggsson á heimasíðu félagsins.

Rúnar þekkir það ágætlega að taka við liði á erfiðum stað en hann tók við Leipzig á sinum tíma er liðið var í mikilli fallbaráttu en sneri gengi liðsins við á skömmum tíma og gerði það að stabílu úrvalsdeildarliði áður en leiðir hans og félagsins skildu eftir síðustu leiktíð.

Samningur Rúnars við Wetzlar er til lok næstu leiktíðar, eða sumarsins 2027.

Hress styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina - Í tilefni þess fá allir hlustendur og lesendur Handkastsins 15% afslátt af öllum boozt á Hressbarnum og 15% afslátt af öllum staðgreiddum kortum út desember. Hress er staðsett á Dalshrauni 11 í Hafnarfirði. Verði ykkur að góðu.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top