Danska stórliðið Odense hefur sagt Jakob Vestergaard upp störfum sem aðalþjálfara kvenna liðsins með tafarlausum hætti. Odense greindi frá ákvörðuninni um helgina en félagið segir þróun liðsins, spilamennsku og árangur að undanförnu ekki hafa staðið undir þeim mikla metnaði sem félagið hefur. Vestergaard tók við Odense sumarið 2025 og hefur því aðeins stýrt liðinu í rúmt ár. „Ákvarðanir sem þessar eru alls ekki skemmtilegar en einhuga stjórn félagsins taldi nauðsynlegt að slíta samstarfinu við Jakob Vestergaard,“ sagði Lasse Honoré, framkvæmdastjóri Odense. Honoré segir félagið hafa komist að þeirri niðurstöðu að liðið hafi ekki staðið undir væntingum um nokkurt skeið og að breytinga sé þörf. Brottreksturinn vekur athygli enda náði Vestergaard ágætum árangri á sínu fyrsta tímabili með liðið. Undir hans stjórn vann Odense bæði danska Ofurbikarinn og bikarkeppnina. Liðið varð einnig í öðru sæti í baráttunni um danska meistaratitilinn og komst í átta liða úrslit Meistaradeildar Evrópu. Odense hefur hins vegar farið verr af stað í Meistaradeildinni á þessu tímabili og forráðamenn félagsins telja að liðið þurfi nýjar áherslur til þess að ná þeim markmiðum sem sett hafa verið. Leit að nýjum aðalþjálfara er þegar hafin en Mark Strandgaard, sem hefur verið aðstoðarþjálfari liðsins, tekur tímabundið við stjórn þess. Fyrsti leikur Odense eftir brotthvarf Vestergaard var strax í gær þegar norska liðið Storhamar vann Odense með þremur mörkum í Danmörku, 23-26.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.