Stórsigur hjá Gróttu í Úlfarsárdalnum
Eyjólfur Garðarsson

Fram 2 og Grótta mættust í dag í Úlfarsárdalnum í Grill 66 deild karla.

Fyrstu mínútur leiksins voru nokkuð jafnar en eftir um 10 mínútna leik náði Grótta góðum tökum á leiknum með góðu forskoti. Litu þeir aldrei um öxl eftir það. Hálfleikstölur voru 13-21 fyrir Gróttu.

Eftir um 10 mínútna leik í seinni hálfleik voru Gróttu menn komnir í 11 marka forskot. Voru þeir að leika vel og fínn heildarbragur á þeirra leik.

Þeir stigu svo ennfrekar á bensíngjöfina það sem eftir lifði leiks og uppskáru að lokum 14 marka stórsigur. Lokatölur 24-38 fyrir Gróttu sem eru enn taplausir það sem af er móti.

Það er ljóst að Grótta gæti verið að fara í æsispennandi keppni við ÍR um að vinna deildina.

Hjá Gróttu var Sæþór Atlason markahæstur eins og oft áður með 8 mörk. Þórður Magnús og Hannes Pétur vörðu samtals 18 skot.

Hjá Fram 2 var Alex Unnar Hallgrímsson markahæstur með 7 mörk. Jóhann Ágústsson varði 11 skot.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top