Grótta 2 og Víkingur mættust í dag á Seltjarnarnesi í Grill 66 deild kvenna. Fyrri hálfleikur var lengi vel jafn og spennandi. Mikið jafnræði var með liðunum fyrstu 25 mínúturnar. En seinustu 5 mínúturnar náðu Víkings stelpurnar að slíta sig aðeins frá Gróttu og voru hálfleikstölur 12-16 fyrir Víking. Í seinni hálfleik slitu Víkings stelpur sig endanlega frá Gróttu liðinu og voru úrslitin ráðin frekar snemma. Munurinn hélst í 6-9 mörkum lengst af og urðu lokatölur 22-31 fyrir Víking. Þær halda því áfram á sigurbraut þrátt fyrir að hafa leikið án Ólafar Ástu og Anitu Muratovic í þessum leik. Hjá Víking var Guðrún Maryam Rayadh og Ivana Meincke markahæstar með 8 mörk. Þórdís Idda varði 6 skot. Hjá Gróttu var Edda Sigurðardóttir markahæst með 6 mörk. Soffía Helen Sölvadóttir varði 13 skot. Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.