Guðjón Valur fær fyrrum markvörð Alla Eyjólfs
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Samkvæmt heimildum Handballbase hefur Dominik Kuzmanovic markvörður Gummersbach og króatíska landsliðsins skrifað undir samning við SC Magdeburg, þar sem hann gengur til liðs við félagið næsta sumar sem arftaki Nikola Portner.

Nikola Portner hefur verið orðaður við ungverska félagið Pick Szeged.

Króatísku landsliðsmennirnir Dominik Kuzmanovic og Matej Mandic munu mynda spennandi markmannsteymi í Magdeburg. Þar sem Kuzmanovic er samningsbundinn Gummersbach til ársins 2028 er ljóst að Magdeburg þarf að kaupa Kuzmanovic frá Gummersbach.

Á sama tíma hefur Gummersbach fyllt skarð Kuzmanovic en samkvæmt RThandballgermany á Instagram hefur félagið náð samkomulagi við Ignacio Biosca.

Spænski markvörðurinn yfirgefur HBC Nantes þar sem Christoffer Bonde hefur samið við félagið og gengur í raðir Nantes frá Skjern næsta sumar.

Ignacio Biosca hefur verið á faraldsfæti undanfarin ár en hann gekk í raðir Nantes á síðasta ári. Þar áður hefur hann leikið með Veszprém, Wisla Plock og Kadetten Schaffhausen en þar lék hann undir stjórn Aðalsteins Eyjólfssonar þjálfara Víkings í dag.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top