Íslands- og bikarmeistarar Fram fara í jólafrí í Olís-deild karla á fljúgandi siglingu en liðið hefur unnið þrjá leiki í röð í deildinni nú síðasta topplið Hauka á Ásvöllum í gærkvöldi 25-27. Það sem gerir sigur Fram athyglisverðan er að liðið var án Rúnars Kárasonar og Viktors Sigurðssonar í leiknum og þar að auki fékk Erlendur Guðmundsson rautt spjald um miðjan seinni hálfleikinn. Haukar voru þremur mörkum yfir 23-20 en þá sneru Framarar taflinu sér í vil og unnu lokamínútur leiksins 7-2. Einar Jónsson þjálfari Fram sagði í samtali við Handkastið að Viktor Sigurðsson væri að glíma við meiðsli á ökkla og því hafi hann ekki verið leikfær í leiknum í gær. Rúnar Kárason hefur verið að glíma við eymsli í kálfa um tíma og hefur verið í litlu hlutverki hjá Fram að undanförnu. Framarar fara norður á Akureyri á föstudagskvöldið og mæta þar KA í 8-liða úrslitum Powerade-bikarsins. Gera má ráð fyrir því að bæði Viktor og Rúnar geti leikið í þeim leik en Einar sagði að meiðsli Viktors væru ekki alvarleg.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.