Dregið í undanúrslit bikarsins í byrjun febrúar
Egill Bjarni Friðjónsson

Ljóst er hvaða fjögur lið leika í bikarúrslitahelginni í Powerade-bikarnum í karla flokki en leikið var í 8-liða úrslitunum 19. desember síðastliðinn.

FH sló út Aftureldingu, KA vann Íslands- og bikarmeistara Fram, ÍR vann Grill66-deildarlið Fjölnis og Haukar unnu HK í Kórnum.

8-liða úrslitin í Powerade-bikar kvenna fara ekki fram fyrr en í byrjun febrúar en þá skýrist hvaða fjögur lið leika í Final4 kvennamegin. Stórleikur 8-liða úrslitanna í kvennaflokki er án efa leikur Fram og ÍR sem fer fram 2. febrúar en hinir þrír leikirnir verða leiknir 4. febrúar. Grótta - KA/Þór mætast, Víkingur - Haukar og FH - Valur hinsvegar. Athygli vekur að þrjú af átta liðum 8-liða úrslitina eru lið úr Grill66-deildinni en bæði FH og Grótta slóu út Olís-deildarlið í 16-liða úrslitunum.

Í svari HSÍ við fyrirspurn Handkatsins um það hvenær dregið verður í undanúrslitin er gert ráð fyrir því að dregið verði í undanúrslitin fimmtudaginn eða föstudaginn 5. eða 6. febrúar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top