Verður formsatriði fyrir Dani að vinna EM?
BO AMSTRUP / Ritzau Scanpix via AFP)

Evrópumeistaramótið í handbolta hefst 15.janúar næstkomandi þar sem Frakkland á titil að verja eftir sigur á Dönum í framlengdum úrslitaleik 33-31 sem fram fór í Þýskalandi árið 2024.

Veðbankinn Coolbet býður upp á ýmsa skemmtilega markaði til þess að veðja á Evrópumótið. Einn þeirra er hvaða lið er líklegast til að lyfta þeim stór í lok mótsins.

Danir eru taldir líklegastir á stuðlinum 1.38 sem verður að teljast ansi lágt í aðdraganda mótsins. Svíar sem eru að halda mótið ásamt Norðmönnum og Dönum eru taldir næst líklegastir á stuðlinum 8 en Ísland mun einmitt mæta Svíum í milliriðli ef allt gengur eftir.

Ríkjandi meistarar í Frakklandi eru taldir þriðju líklegastir til að vinna mótið og er hægt að tífalda upphæðina með að veðja á Frakkana.

Strákarnir okkar í Íslandi eru taldir fimmtu líkelgastir til að vinna mótið á stuðlinum 20.

Það verður spennandi að sjá hvort Coolbet reyndist sannspáir og Danir lyfti þeim stóra í janúar en það eru orðin 12 ár síðan Danir urðu Evrópumeistarar síðast.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top