

Handkastið greindi frá því á dögunum að Adam Thorstensen markvörður Stjörnunnar fór til Þýskalands fyrir jól og var þar á reynslu hjá þýska B-deildarliðinu, VFL Lubeck en liðið situr í 8.sæti deildarinnar um þessar mundir með 19 stig. Rætt var um þetta í nýjasta þætti Handkastsins þar sem Kristinn Björgúlfsson stofnandi leikmannasamtakanna og góðvinur Handkastsins hvatti Adam til að stökkva á tækifærið ef það myndi bjóðast. ,,Það er mín skoðun að ef Adam stekkur ekki á þetta þá er þetta hans síðasta tækifæri til að verða eitthvað. Nú höfum við beðið eftir því að Adam verði næsti Viktor Gísli í nokkur ár. Hann hefur vissulega verið óheppinn með höfuðmeiðsli en nú held ég að það sé kominn tími fyrir Adam að hætta meðalmennskunni og gefa allt í þetta og taka sénsinn. Til að verða sá markvörður sem hann getur orðið, því hæfileikarnir og allt annað er til staðar. Það hefur vantar þetta síðasta spark í rassinn,” sagði Kristinn meðal annars í Handkastinu. Adam sem er fæddur árið 2002 hefur stefnt að því að fara út í atvinnumennsku og það gæti farið svo að hann yfirgefi Stjörnuna næsta sumar og haldi út í atvinnumennsku. Adam var samningslaus Stjörnunni eftir síðasta tímabil en gerði eins árs samning við félagið í sumar. Hann var orðaður við erlönd félög í sumar en ekkert varð úr því. Stjarnan er í 8.sæti Olís-deildar karla með 10 stig að loknum 15 umferðum með jafn mörg stig og HK sem er í 9.sæti deildarinnar. Keppni í Olís-deild karla fer aftur af stað í byrjun febrúar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.