Ómar Ingi Magnússon og Janus Daði Smárason (Sævar Jónasson)
Mikið hefur verið rætt um róteringar og álagsstýringu íslensku landsliðsþjálfarana í undanförnum stórmótum þar sem lykilmenn, þar á meðal Ómar Ingi Magnússon hafa verið keyrðir í kaf og oftar en ekki hafa lykilmenn dottið út af stórmótum þegar líður á keppninnar. Ómar Ingi Magnússon, fyrirliði íslenska landsliðsins missti af síðasta stórmóti vegna meiðsla. Hann skilur umræðuna en segir að málið sé frekar skýrt. Það vilji flestir leikmenn spila eins mikið og hægt er. Hann var spurður út í þetta í viðtali við Handkastið og hann virtist ekkert vera rosalega hrifinn af þeirri hugmynd að Snorri Steinn færi að rótera leikmönnum meira. ,,Ég held að hver og einn leikmaður vilji spila sem mest, innan ákveðins ramma og leikmaðurinn sé ekki að fara meiðast vegna álags. Það er meira fyrir Snorra að ákveða einhverja rútínu á það,” sagði Ómar Ingi. Hann brosti og hló þegar hann var spurður hvort hann væri óbeint að segja að hann væri ekki að kallast eftir því að vera tekinn útaf? ,,Eins og ég sagði, ég held að hver og einn vilji spila sem mest. En oft á tíðum vita það flestir að það er ekki hægt að spila allar mínútur í öllum leikjum,” sagði Ómar Ingi meðal annars í viðtali við Handkastið á dögunum. Fyrsti leikur Íslands á EM fer fram á morgun klukkan 17:00 þegar Ísland mætir Ítalíu í Kristianstad í Svíþjóð. Handkastið verður á svæðinu og gerir upp alla leiki Íslands í hlaðvarpsþætti sínum strax að leikjum loknum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.