Erum ekki með hangandi haus að bíða eftir Þorsteini Leó
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Viktor Gísli - Einar Þorsteinn - Þorsteinn Leó (Sævar Jónasson)

,,Innan hópsins vonumst við auðvitað til að hann verði klár sem fyrst en við erum meðvitaðir um stöðuna og hann hefur ákveðið X-faktor að koma með inn á völlinn. Við erum ekki margir sem eru 2,20cm og hreyfum okkur samt eins og NBA leikmaður," sagði Janus Daði Smárason leikmaður íslenska landsliðsins í viðtali við Handkastið á dögunum aðspurður að því hvort undirbúningur liðsins væri eitthvað öðruvísi eftir meiðslin á Þorsteini Leó.

Vonir standa til að Þorsteinn Leó Gunnarsson, leikmaður Porto geti spilað með íslenska landsliðinu í milliriðli Evrópumótsins komist liðið þangað en fyrst þarf liðið að spila þrjá leiki í riðlakeppni mótsins og vera í efstu tveimur sætum riðilsins.

,,Ég held að það gangi vel hjá honum og vonandi fáum við að njóta krafta hans á mótinu. Við erum hinsvegar ekkert með hangandi haus að bíða eftir honum. Það væri held ég bara skrítið," sagði Janus Daði í viðtali við Handkastið.

Þorsteinn Leó sagði sjálfur í viðtali við Handkastið að endurhæfingin gangi ágætlega og stefnan væri á að ná leikjum í milliriðlinum. Hvort um raunhæft markmið væri um að ræða, sagði Þorsteinn Leó að hann vonaðist allavegana eftir því að það myndi takast.

Íslend hefur leik á Evrópumótinu 16.janúar gegn Ítalíu og spilar svo gegn Póllandi 18.janúar og Ungverjalandi 20.janúar.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Post Views: 19
Scroll to Top