Segir þjálfara Ítala elska rauðvín og Ítalíu
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Bob Hanning (Andreas Gora / dpa Picture-Alliance via AFP)

Ísland mætir Ítalíu í fyrsta leik sínum á Evrópumótinu í dag klukkan 17:00 en þjálfari ítalska landsliðsins er Bob Hanning, framkvæmdastjóri Fuchse Berlín í þýsku úrvalsdeildinni.

Einn af landsliðsmönnum Íslands, Bjarki Már Elísson þekkir Bob Hanning vel eftir veru sína hjá Fuchse Berlín 2015-2019.

,,Ég þekki hann ágætlega. Þetta er maður sem hefur alltaf verið með sterkar skoðanir og hefur alltaf verið í yngri flokka þjálfun þó hann hafi verið framkvæmdastjóri Fuchse Berlín. Síðan elskar hann Ítalíu og rauðvín þannig það kom mér lítið á óvart að hann hafi komið sér inn í þetta gigg,” sagði Bjarki Már meðal annars í viðtali við Handkastið í síðustu viku.

,,Ég sá hann marg oft þjálfa yngri flokkana hjá Fuchse Berlín. Hann er mjög ákveðinn og vill ekki sérhlífna leikmenn. Hann vill að menn fari mikið á kraftinum og koma á fullu einn á einn. Bæði varnar og sóknarlega, þú mátt aldrei gefa neitt eftir. Ég býst við þeim mjög heitum gegn okkur og í hinum leikjunum í riðlinum.”

,,En þetta verður gaman, ég hef aldrei mætt Ítölum og ekki heldur Pólverjum. Ég hef mætt Ungverjum alltof oft, þetta verða skemmtilegir fyrstu tveir leikir og síðan förum við vonandi í úrslitaleik gegn Ungverjum,” sagði Bjarki Már að lokum.

Handkastið verður á leiknum í Kristianstad og gerir síðan upp leikinn í hlaðvarpsþætti sínum að leik loknum.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top