Domenico Ebner (Tom Weller / dpa Picture-Alliance via AFP)
Ítalir eru temmilega bjartsýnir fyrir komandi Evrópumóti en Ítalía verður fyrsti andstæðingur Íslands á mótinu á morgun. Ísland og Ítalía mætast klukkan 17:00 í Kristianstad og þar verður Handkastið á svæðinu og gerir upp leikinn í hlaðvarpsþætti sínum strax að leik loknum. Markvörður liðsins, Domenico Ebner leikmaður Leipzig í þýsku úrvalsdeildinni leggur áherslu á mikilvægi Bobs Hannings þjálfara Ítalíu og framkvæmdastjóra Fuchse Berlín fyrir þróun liðsins, nýtt varnarkerfi og vaxandi trú leikmanna liðsins á að geta unnið stærri þjóðir. Eftir 28 ára fjarveru tekur þjóðin aftur þátt í Evrópumóti en þetta er í fyrsta skipti í sögunni sem Ítalía vinnur sig inná Evrópumótið því þeir voru gestgjafar í eina skiptið sem landslið Ítalíu hefur tekið þátt á EM. Bob Hanning er sagður eiga nánast allan heiðurinn á uppbyggingu ítalska landsliðsins. Markvörðurinn Domenico Ebner viðurkennir að liðið eigi fyrir höndum erfiða leiki í riðlakeppninni með Íslandi, Póllandi og Ungverjalandi. ,,Við erum í mjög, mjög erfiðum riðli en við höfum sagt að við munum setja ítalska harjtað á völlinn. Það yrði risastórt fyrir okkur ef við komumst uppúr riðlinum,” sagði Ebner í viðtali við SportBild. „Ég held að við þurfum ekkert að skammast okkur fyrir það. Við förum inn í mótið með sjálfstraust og við höfum sýnt að við höfum lært mikið og bætt okkur mikið undanfarin ár.” Bob Hanning tók við ítalska landsliðinu eftir HM og er nú á leið á sitt fyrsta stórmót með Ítalíu. „Við erum að spila allt öðruvísi varnarkerfi núna. Mjög óþægilegt fyrir andstæðinga okkar. Bob er stöðugt að reyna að ýta okkur til að taka annað skref, og utan vallar höfum við líka orðið miklu fagmannlegri,“ útskýrir Ebner en Ítalir eru að spila framliggjandi 3-3 varnarleik. Á sama tíma bendir hann á að áhrif Hanning nái út fyrir leikinn sjálfan. „Bob vill að sambandið þróist einnig á sama tíma og hefur haft jákvæð áhrif og hefur sýnt okkur hvað er í raun mögulegt.” ,,Það sem hjálpar okkur virkilega er að Bob kann að meta og skilur ítalskt hugarfar. Hann er á sömu bylgjulengd og við. Ítalir eru fjölskylduvænir og afslappaðir og við tökum okkur tíma til að borða saman. Hann skilur það,“ sagði Ebner en samskipti Bob Hanning við liðið fer fram á ensku. Ebner telur að sjálfsmynd liðsins hafi breyst verulega á undanförnum árum. „Við erum ekki lengur litla Ítalía. Við getum sigrað stærri þjóðir. Þetta er mjög góð þróun og það er sérstök tilfinning fyrir bæði mig og liðið.“

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.