
Snorri Steinn og Ómar Ingi (Sævar Jónasson)
Þeirri spurningu var beint að sérfræðingum RÚV fyrir Evrópumótið hver staðan Snorra Steins Guðjónssonar væri sem þjálfari íslenska landsliðsins ef liðið myndi ekki ná betri árangri undir hans stjórn á Evrópumótinu sem hófst í gærkvöldi. Fyrsti leikur Íslands á mótinu fer fram í dag klukkan 17:00 þegar strákarnir okkar mæta Ítalíu í Kristianstad. Handkastið verður á svæðinu og gefur út uppgjörsþátt strax að leik loknum í hlaðvarpsformi. ,,Talandi um Snorra, þetta er þriðja stórmótið hans. Við höfum endað í 9. og 10. sæti á þessum móti undir stjórn Snorra Steins. Ef við endum í 9. og 10. sæti á þessu móti, hver er staða Snorra Steins þá?” spurði Helga Margrét Höskuldsdóttir sérfræðinga sína í hlaðvarpsþætti RÚV fyrir mótið, Biðstofunni. Kári Kristján Kristjánsson var fyrstur að taka til máls og fannst staða Snorra Steins nokkuð skýr. ,,Það verður að segja hreint og beint að hún yrði völt, það verður að segjast. Miðað við hópinn sem við erum með þá er ekkert annað en árangur sem er krafa. Við verðum líka að grípa gæsina þegar hún gefst, íþróttirnar eru þannig. Við fáum bara á vissum tímabilum x kynslóð sem er frábær í handbolta, síðan kemur bara lægð,” segir Kári og bætir við að nú sé kominn tími til að sjá árangur á stórmóti. ,,Við getum ekki bara beðið og beðið og talað um einhvern uppbyggingarfasa. Við erum ekki þar núna. Ef árangurinn verður ekki góður þá verður Snorri mjög valtur í sessi, það er alveg gefið. Þetta getur ekki verið 5-7 ára verkefni.”

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.