Viktor Gísli einbeittur (Sævar Jónasson)
Viktor Gísli Hallgrímsson var frábær í marki Íslands þegar liðið vann Slóveníu 32-26 á föstudagskvöldið og var frammistaða hans rædd í nýjasta þætti Handkastsins. Arnar Daði hafði orð á því að það væri greinilega að Viktor Gísli væri kominn með nýtt vopn í vopnabúrið hjá sér miðað við þennan leik. ,,Sáuð þið hvað Viktor Gísli var snöggur að koma boltanum í leik, bæði eftir að hann fékk á sig mark og eftir hann varði?" Styrmir tók undir þessi orð Arnars og bætti við hvað hann væri búinn að stækka allur. ,,Móðir mín hringdi í mig eftir leik og hafði orð á því hvað Viktor væri búinn að massast upp og ég held ég hafi aldrei séð fyrstu tempó sendingu frá honum framm, algjör píla á Orra þarna þannig það er frábært að eiga þetta í vopnabúrinu líka." Einar Ingi var mjög ánægður að sjá á hversu góðum stað Viktor Gísli væri og það væri greinilegt að sjálfstraustið væri mikið og framminn á honum væri orðinn miklu stærri heldur en fyrir ári síðan. Umræðuna um Viktor Gísli og allan nýjasta þátt Handkastsins má sjá hér að neðan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.