Tímamót hjá Janusi í leiknum í dag
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Janus Daði Smárason leikur sinn 100. landsleik fyrir Ísland í dag er liðið mætir Ítalíu í 1. umferð riðlakeppni Evrópumótsins sem hófst í gær. Leikur Íslands og Ítalíu hefst klukkan 17:00 og fer fram í Kristianstad í Svíþjóð.

Leikurinn verður sýndur í beinni á RÚV en Handkastið verður á svæðinu og gerir upp 100. leik Janusar í hlaðvarpsþætti sínum strax að leik loknum.

Fyrsti A-landsleikur Janusar Daða leikmanns Pick Szeged í Ungverjalandi var gegn Úkraínu í Sumy í Úkraínu 5. nóvember 2016 í undankeppni EM.

Síðan þá hafa liðið 98 landsleikir og ljóst að 100. landsleikur Janusar verður í Kristianstad í dag.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top