Fyrrum þjálfari Þórs tekur við liði í Meistaradeildinni
AXEL HEIMKEN / dpa Picture-Alliance via AFP)

Stevče Alušovski sem þjálfaði lið Þórs á Akureyri í Grill66-deildinni fyrir nokkrum árum með misjöfnum árangri hefur verið kynntur sem nýr þjálfari Eurofarm Pelister sem leikur í Meistaradeild Evrópu.

Stevče er nú mættur í uppeldisklúbbinn og á að leiða liðið til sigurs í makedónsku deildinni ásamt því að eiga fyrir höndum fjóra leiki eftir í Meistardeild Evrópu. Stevče tekur við liðinu eftir að Spánverjinn Ruben Garabaya sagði óvænt upp í desember.

Eurofarm Pelister eru í 2.sæti í heimalandinu , fjórum stigum á eftir Vardar en Stevce þjálfaði Vardar á sínum tíma áður en hann tók við Þór.

Það verður fróðlegt að sjá hvernig þessi fyrrum þjálfari Þórs á Akureyri mun standa sig með makedónska liðið.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top