Ítalía (Alessandro Tocco / NurPhoto via AFP)
Fyrstu andstæðingar Íslands á Evrópumótinu, Ítalía eru með næst yngsta liðið á mótinu. Þetta kemur fram í færslu frá Datahandball_ á samfélagsmiðlinum X. Þjóðirnar mættust í Kristianstad Arena í gær. Íslenska landsliðið vann 13 marka sigur á Ítölum í gær í fyrsta leik þjóðanna á Evrópumótinu. Meðalaldur Ítalíu er ekki nema 24,6 ár en yngsta liðið á mótinu er Georgía sem er með meðalaldur upp á 23,66. Þjálfari Georgíu er Íslandsvinurinn, Tite Kalandadze fyrrum leikmaður ÍBV og Stjörnunnar. Georgía eru jafnframt með yngsta leikmann mótsins en það er Vakhtang Kharebashvili, sem er aðeins 17 ára og þriggja mánaða gamall. Íslenska karla landsliðið er fjórða elsta liðið á Evrópumótinu með meðalaldur uppá 27,73 ár en Danir eru með elsta liðið á mótinu með meðalaldur upp á 28,6. Ungverjar sem eru með Íslandi í riðli á Evrópumótinu og mæta Íslandi í lokaumferð riðilsins eru í 5.sæti með meðalaldur uppá 27,4 ár ásamt Svartfjallalandi. Pólverjar sem verða andstæðingar Íslands í 2.umferðinni eru í 15.sæti yfir elsta lið keppninnar með meðalaldur uppá 25,26 ár, rétt á eftir Færeyjum. Hér að neðan má sjá lista yfir 12 yngstu liðin á Evrópumótinu sem hófst á fimmtudaginn. Næsti leikur Íslands á mótinu er á morgun þegar strákarnir okkar mæta Pólverjum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.