Slave Nikolov (JAN WOITAS / dpa Picture-Alliance via AFP)
Greint frá því á dögunum að norður-makedónísku dómarnir Slave Nikolov og Gjorgji Nachevski fái ekki að dæma á Evrópumótinu sem hefst næstkomandi fimmtudag. Þeir eru sagðir hafa svindlað á hlaupaprófi sem þeir þurftu að standast í aðdraganda Evrópumótsins með því að hafa átt við myndbandið sem þeir sendu frá sér. Samkvæmt reglum EHF verða dómarar að taka hlaupapróf átta vikum fyrir mót og svo aftur fjórum vikum fyrir mót, taka þau upp og senda myndböndin inn. Nikolov og Nachevski eru grunaðir um að hafa sent inn falsað myndband og fá því ekki að dæma á Evrópumótinu. Hefur þetta dómarapar áður komið sér í klípu en þeir hafa meðal annars verið bendlaðir við veðmálasvindl og árið 2023 voru þeir meðal átta handboltadómara sem lágu undir grun um að hafa tekið hátt í að hagræða úrslitum. Rætt var um málið í nýjasta þætti Handkastsins þar sem Einar Jónsson þjálfari Íslands- og bikarmeistara Fram var gestur en hitað var upp fyrir Evrópumótið í þættinum. ,,Ef það voru einhverjar dómarar sem hefðu átt að komast upp með þetta svindl í hlaupaprófinu þá voru það þeir. Út frá því hversu mikið þeir hafa komist upp með í gegnum tíðina. Síðan á að fella þá á að einhverju hlaupatesti,” sagði Arnar Daði Arnarsson þáttastjórnandi Handkastsins. ,,Þetta er eins og að dæma Pablo Escobar fyrir skattsvik,” benti Stymmi klippari á. ,,Þetta er enn ein skrautfjöðurinn í þeirra hatt,” bætti Einar Jónsson við.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.