
Ítalía (Alessandro Tocco / NurPhoto via AFP)
Íslenska landsliðið hefur leik á Evrópumótinu í Handbolta í dag þegar þeir mæta Ítalíu í fyrsta leik. Það er skemmst frá því að segja að eftir mikla leit á veraldarvefnum þá tókst mér ekki að finna neinar fyrri viðureignir og verður þetta því í fyrsta skipti sem liðin mætast á handboltavellinum. Ítalska liðið er að taka þátt í Evrópumótinu í annað sinn en þeir héldu mótið árið 1998. Ítalskur handbolti er á mikilli uppleið og endaði liðið í 16.sæti á heimsmeistaramótinu í fyrra og eru leikmenn liðsins að spila í mörgum af sterkustu deildum Evrópu. Þjálfari liðsins er enginn annar en Bob Hanning framkvæmdarstjóri þýsku meistaranna í Fusche Berlín og er vægast sagt skrautlegur karakter. Áhorfendur geta átt von á ítalska liðinu mjög framarlega þegar þeir verjast og eru þeir óhræddir að mæta liðum jafnvel upp á miðju. Sóknarlega taka þeir stundum upp á því að spila án línumanns og eru þá með fjóra leikmenn í úti stöðunum

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.