
Rémili missir af mótinu vegna meiðsla (Ayman Aref / NurPhoto via AFP)
Evrópumótið hefst í dag á fjórum leikjum í A og C riðli en þessir riðlar eru spilaðir í Herning og Osló. Ísland hefur leik á Evrópumótinu á morgun þegar liðið mætir Ítalíu í Kristianstad klukkan 17:00 á íslenskum tíma. Hér að neðan má sjá leiki dagsins á Evrópumótinu. A riðill Spánn og Serbía mætast í opnunarleik mótsins í Herning. Spánn er sigursælasta lið mótsins en liðið hefur níu sinnum unnið til verðlauna á mótinu. Tvisvar sinnum unnið gull, fimm sinnum silfur og tvisvar sinnum brons. Serbía naði besta árangri sínum á EM árið 2012 þegar liðið vann til silfurverðlauna. Við Íslendingar eigum okkar fulltrúa hér en Anton og Jónas munu dæma þennan opnunarleik mótsins. Þýskaland - Austurríki kl. 19:30 Það verður sannkallaður grannaslagur þegar Þýskaland og Austurríki mætast. Þýskaland koma inn í leikinn sem sigurstranglegra liðið en Austurríki hefur fest sig í sessi á stóra sviðinu og taka núna þátt á EM í fimmta skiptið í röð. Mikill rígur er á milli þessara nágrannaþjóða en Andy Wolff sagði í samtali við handball-planet að Austurríki spilaði mjög leiðinlegan handbolta og það verður því áhugavert að sjá hvernig Austurríkismenn vilja svara þessari gagnrýni þýska markvarðarins. C riðill Frakkar munu hefja titilvörn sína á leik gegn Tékkum en Frakkland vann Danmörk 33-31 í úrslitaleiknum 2024 eftir framlengdan leik. Besti árangur Tékklands kom hinsvegar árið 2018 þegar liðið endaði í sjötta sæti. Frakkar urðu fyrir blóðtöku rétt fyrir mót þegar það kom í ljós að Nédim Rémili gæti ekki tekið þátt vegna kálfameiðsla. Noregur - Úkraína kl. 19:30 Telja verður að norska liðið sé sigurstranglegra í kvöld en liðið hefur tekið þátt á öllum Evrópumótum frá 2006 og besti árangur þeirra eru bronsverðlaun frá árinu 2020. Úkraína var ekki með á EM árið 2024 þegar liðið komst ekki í gegnum forkeppnina. Besti árangur liðsins er 11. sæti árið 2002.
Spánn - Serbía kl. 17:00
Frakkland - Tékkland

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.