Hugo Descar skorar gegn Wolff ((Photo by Thomas COEX / AFP)
Frakkar urðu fyrir öðru áfalli í gærkvöldi þegar vinstri hornamaður liðsins, Hugo Descat liðsfélagi Bjarka Más Elíssonar hjá Veszprém í Ungverjalandi, snéri sig á ökkla á æfingu liðsins í Osló. Hann verður því ekki með liðinu sem mætir Tékklandi í fyrsta leik í kvöld en Frakkar eru þó bjartsýnir að hann verði tilbúinn síðar á mótinu. Þetta eru önnur meiðsli Frakka á tveim dögum en í gær var það tilkynnt að Nedim Remili þurfti að draga sig úr hópnum vegna meiðsla og verður ekkert með Frökkum á mótinu. Annar leikur Frakka á mótinu sem eru ríkjandi Evrópumeistarar er gegn Úkraínu á laugardaginn áður en liðið mætir Noregi á mánudaginn.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.