Hinn tvítugi Ari Valur Atlason hefur fengið í raðir KA frá FH í Olís-deild karla. KA greinir frá þessu á heimasíðu sinni nú í morgun. Ari Valur skrifar undir eins og hálfs árs samning við KA en hann er annar leikmaðurinn sem gengur í raðir félagsins á síðustu vikum því fyrir jól gekk Ágúst Elí Björgvinsson í raðir KA frá Ribe-Esbjerg í Danmörku. ,,Ari Valur sem er tvítugur er spennandi vinstri skytta sem mætir norður frá FH og ÍH. Ari Valur er þó KA maður í húð og hár en hann hóf yngriflokkaferilinn hjá KA áður en hann hélt suður en faðir hans er enginn annar en Atli Sveinn Þórarinsson sem flestir KA menn ættu að þekkja vel til eftir frábæran knattspyrnuferil. Atli sneri einnig heim í KA á dögunum er hann tók við sem afreksþjálfari knattspyrnudeildar og er magnað að fá þá feðga aftur norður í gult og blátt," segir í tilkynningunni frá KA. ,,Ari Valur er afar spennandi leikmaður sem er bæði öflugur í vörn og sókn. Undanfarin tvö ár hefur hann barist við erfið meiðsli en hefur sýnt mikinn karakter að koma sér aftur af krafti inn á völlinn og gerði meðal annars 51 mark í 13 leikjum með liði ÍH í vetur," segir enn fremur í tilkynningunni frá KA.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.