Aldrei séð betra handboltalið í sögunni
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Jonas Wille - Noregur (FRANCOIS LO PRESTI / AFP)

Norski landsliðsþjálfarinn, Jonas Wille efast ekki um hvaða þjóð hann telur vera líklegust til að vinna til gullverðlauna á Evrópumótinu.

Fjórfaldir heimsmeistarar Danmerkur leika á heimavelli allt mótið og eru af nánast öllum taldir líklegastir til að vinna mótið. Þetta yrði þá fyrsti sigur Danmerkur á Evrópumótinu í 14 ár eða frá því á EM 2012.

,,Þetta er leiðinlegt svar, en Danmörk er auðvitað lang sigurstranglegastir. Við höfum aldrei séð betra handboltalið í sögunni. Það er ótrúlega merkilegt hvað þeir eru að gera en á sama tíma eru þeir mannlegir, svo það þeir geta allt eins átt slæma leiki eins og aðrir,” sagði norski landsliðsþjálfarinn við TV 2 Sport.

Noregur byrjar Evrópumeistaramótið í kvöld klukkan 19:30 þegar liðið mætir Úkraínu. Fyrsti leikur Danmerkur á mótinu verður annað kvöld er liðið mætir Norður-Makedóníu á heimavelli í Herning.

Á veðmálasíðunni Coolbet er stuðullinn 1.35 á að Danir verði Evrópumeistarar. Næst líklegastir eru Frakkar með stuðulinn 9. Svíar eru með stuðulinn 12 og næst koma Ísland og ríkjandi Evrópumeistarar Frakka á stuðlinum 21.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top