Ítalía (Alessandro Tocco / NurPhoto via AFP)
Fyrsti leikur Íslands á Evrópumótinu fer fram í dag þegar strákarnir okkar mæta Ítalíu í Kristianstad Arena klukkan 17:00 á íslenskum tíma. Handkastið verður á vellinum og gerir upp leikinn í hlaðvarpsþætti sínum strax að leik loknum. Síðasti upphitunarþáttur Handkastsins var tekinn upp í gær þar sem hringt var í hinn og þennan. Meðal annars var hringt í handboltaspekúlantinn, Guðjón Guðmundsson sem hefur fylgst með uppgangi Ítala í handbolta undanfarin ár. Hann segir að það sé nokkuð ljóst að þetta verður ekki einfaldur leikur fyrir strákanna okkar í dag. ,,Þeir eru með frábæran markmann í Domenico Ebner (markvörður Leipzig), hægri hornamann í heimsklassa, Leo Prantner (leikmaður Fuchse Berlín) - þeir eru með fleiri góða leikmenn. Mengon bræðurnir eru gríðarlega öflugir og síðan er Thomas Bortoli, örvhentur 1,94 cm og hefur leikið í Frakklandi, gríðarleg skytta og síðan er hægt að nefna leikmann eins og Mikael Helmersson og fleiri. Þeir eru stórhættulegir og leika óhefðbundið.” ,,Þeir fara langt út á völlinn, sumir segja að þeir spili 3-3 en ef þú sérð þetta ofan frá þá er þetta hápressa, 5-1. Það getur verið gríðarlega erfitt að leysa þessa vörn en þeir eru með valinn mann í hverju rúmi. Ég man ekki betur en ég hafi sagt við Arnar Daða fyrir þremur árum að Ítalía væri á leið upp og yrði með stórlið í alþjóðlegum handknattleik á næstu árum og það er að raungerast,” sagði Guðjón Guðmundsson að lokum. Hægt er að hlusta á síðasta upphitunarþátt Handkastsins á öllum helstu hlaðvarpsveitum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.