Eftirmaður Gumma Gumm aldrei unnið Evrópumótið
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Nikolaj Jacobsen - Danmörk (BO AMSTRUP / Ritzau Scanpix via AFP)

Það er með hreinum ólíkindum að Nikolaj Jacobsen þjálfari danska landsliðsins í handbolta hefur einungis einu sinni farið með danska landsliðið í úrslitaleik Evrópumótsins og það var á síðasta Evrópumóti sem fram fór í Þýskalandi árið 2024.

Nikolaj Jacobsen sem tók við danska landsliðinu árið 2017 af Guðmundi Guðmundssyni hefur farið á fjögur Evrópumót sem þjálfari Dana og uppskeran er eitt silfur og eitt brons. 

Á sama tíma hefur Nikolaj Jacobsen unnið heimsmeistaramótið fjórum sinnum (2019, 2021, 2023, 2025) og Ólympíuleikanna einu sinni, 2024 en hann tapaði í úrslitum Ólympíuleikanna í Tokyo 2020 gegn Frökkum.

Danir hefja leik á Evrópumótinu í kvöld á heimavelli í Herning þegar liðið mætir Kiril Lazarov og félögum í Norður-Makedóníu. Stuðullinn á sigur Danmerkur í leiknum í kvöld á Coolbet er ekki í boði en gert er ráð fyrir í kringum 13 marka sigri Dana í kvöld samkvæmt veðbönkum.

Nú er spurning hvort komið sé að því að Nikolaj Jacobsen vinni Evrópumótið í fyrsta sinn og það á heimavelli en úrslitahelgi á Evrópumótinu verður spiluð í Herning í Danmörku.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top