Er Haukur með eitthvað varnarhlutverk í landsliðinu?
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Haukur Þrastarson (Sævar Jónasson)

Það hefur komið mörgum á óvart í hversu litlu hlutverki Haukur Þrastarson var í, í æfingaleikjunum tveimur í aðdraganda Evrópumótsins.

Haukur sem gekk í raðir Rhein Neckar Lowen í þýsku úrvalsdeildinni í sumar eftir eitt tímabil með Dinamo Bucuresti í Rúmeníu er í litlu sem engu varnarhlutverki í Þýskalandi og hefur það veruleg áhrif á hlutverk hans innan íslenska landsliðsins.

Handkastið heyrði í Snorra Steini í gær, daginn fyrir fyrsta leik Íslands á Evrópumótinu og spurði hann aðeins út í hlutverk Hauks hjá liðinu. Er hann með eitthvað varnarhlutverk hjá landsliðinu eða er Snorri að gera ráð fyrir því að skipta honum útaf í vörn í hvert einasta skipti?

,,Það fer eftir því með hverjum hann er á vellinum. Það er ekkert leyndarmál að við gætum alveg verið aðeins betur samsettir varðandi leikmenn sem geta spilað bæði varnar og sóknarlega. Hann spilar ekki vörn hjá Rhein Neckar Lowen en mér finnst hann geta staðið vörnina gegn ákveðnum leikmönnum og þegar það er raunin þá notum við hann varnarlega. Síðan er þetta spurning er Janus með honum, er Gísli með honum og hver er á línunni með honum. Það hefur allt áhrif út frá því hvernig hlutverk hans verður.”

Athygli vakti að Aron Pálmarsson fyrrum fyrirliði landsliðsins virtist ekki vera meðvitaður um það að Haukur Þrastarson fyrrum liðsfélagi hans hjá landsliðinu væri ekki að spila vörn með Rhein Neckar Lowen í þýsku úrvalsdeildinni þegar Aron mætti í hlaðvarpið, Biðstofan á RÚV í aðdraganda mótsins.

,,Ég er ekkert viss um að margir sem eru að spá í þessu og tjá sig um þetta horfi mikið á handbolta erlendis og séu inn í öllum hlutum og það er allt í góðu.”

,,Mér finnst Haukur alveg getað spilað vörn þó svo að það sé ekki hans styrkleiki. Ég er ekkert að velta því fyrir mér núna hvað hann gerir hjá sínu félagsliði. Ef hann spilar vörn hjá okkur þá treystum við honum fyrir því og trúum því að hann klári það sem hann er settur í.”

En erum við þá að tala um það að útlína með Hauki og Gísla er ólíkleg vegna hlutverk þeirra varnarlega?

,,Ef við myndum skrifa eitthvað niður á plan þá er útlínan með Hauk og Gísla Þorgeir saman neðarlega á lista. En þú veist aldrei þegar út í leikinn er komið og ef leikurinn þróast þannig að andstæðingurinn ræður ekki við Gísla Þorgeir og Haukur Þrastar er funheitur þá er frekar að við finnum lausnir til að láta það ganga upp. Síðan er alltaf einhver fórnarkostnaður í leikjum og þú lifir með einhverju. Það getur vel verið að við þurfum að lifa með því að Haukur spili vörn í einhvern tíma. Þá er það okkar þjálfarana að breyta einhverju taktískt svo það gangi upp. Það er eitthvað sem við þurfum að grípa til ef þeir eru okkar bestu sóknarmenn í einhverjum af þessum leikjum," sagði Snorri Steinn Guðjónsson að lokum.

Ísland mætir Ítalíu í Kristianstad klukkan 17:00 í dag í fyrsta leik sínum á Evrópumótinu.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top