Ísland (Sævar Jónasson)
Fyrsti leikur strákanna okkar á Evrópumótinu sem haldið er í Danmörku, Noregi og Svíþjóð fer fram í dag þegar Ísland og Ítalía mætast í Kristianstad klukkan 17:00. Búist er við í kringum 2500 íslenskum stuðningsmönnum í höllinni í Kristianstad. Veðbankar eru allir á því að Ísland vinni leikinn nokkuð sannfærandi en tölfræðin er einnig með Íslandi í liði. Íslenska landsliðið hefur nefnilega ekki tapað sínum fyrsta leik á Evrópumóti á síðustu sex Evrópumótum eða síðan á EM 2012. Ísland tapaði þá með tveimur mörkum gegn Króatíu í fyrsta leik sínum á mótinu. Í kjölfarið komu fimm sigurleikir í röð áður en liðið gerði jafntefli gegn Serbíu á EM 2024 sem var þá fyrsti leikur Íslands undir stjórn Snorra Steins Guðjónssonar landsliðsþjálfara Íslands á stórmóti. Sex síðustu opnunarleikir Íslands á Evrópumótum:
EM 2024: Ísland - Serbía 27-27
EM 2022: Ísland - Portúgal 28-24
EM 2020: Ísland - Danmörk 31-30
EM 2018: Ísland - Svíþjóð 26-24
EM 2016: Ísland - Noregur: 26-25
EM 2014: Ísland - Noregur 31-26 Handkastið verður á vellinum í Kristianstad í dag og gerir upp leikinn í hlaðvarpsþætti sínum strax að leik loknum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.