Jákvæðar fréttir fyrir Færeyinga – Elías gæti spilað í kvöld
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Færeyjar - Elias Ellefsen a Skipagotu (Piotr Matusewicz / DPPI via AFP)

Elias Ellefsen á Skipagøtu er líklegur til að hefja leik í byrjunarliði Færeyja gegn Sviss í kvöld á Evrópumóti karla í handbolta, að því gefnu að upphitun fyrir leikinn gangi að óskum en Elias hefur verið að glíma við axlarmeiðsli síðan í Desember þegar hann meiddist í leik með Kiel.

Elias hefur verið að jafna sig eftir meiðsli í hægri öxl sem hann varð fyrir fyrir jól. Þá var talið að hann yrði frá keppni í fjórar til sex vikur og hefur hann ekki leikið keppnisleik í um mánuð.

Aðstoðarþjálfari færeyska landsliðsins, Hjalti Mohr Jacobsen, segir mikilvægt að fara varlega í upphafi mótsins og meta líðan leikmannsins rétt fyrir leik. Ef ekkert kemur upp á í upphitun mun Elias leiða sóknarleik liðsins frá byrjun.

Færeyjar eiga fyrir höndum að minnsta kosti þrjá leiki á mótinu og því skiptir máli að dreifa álagi á lykilmenn liðsins. Færeyjar spila sinn fyrsta leik á mótinu í kvöld þegar liðið mætir Sviss.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top