Strákarnir okkar ekki í neinum vandræðum með Ítalíu
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Ísland (Johan NILSSON /AFP)

Ísland og Ítalía mættust í Kristianstad í leik sem var að ljúka. Leikurinn byrjaði nokkuð jafn fyrstu fimm mínúturnar en eftir það tóku strákarnir okkar yfir og komust snemma í mjög góða stöðu og silgdu hægt og rólega fram úr og voru strákarnir okkar níu mörkum yfir í hálfleik 21-12

Síðari hálfleikurinn var svo nokkuð þægilegur fyrir Ísland sem misstu aldrei þetta forskot og ókst það bara þegar líða tók á leikinn og loka niðurstaðan 39-26 og frábær þrettán marka sigur staðreynd.

Atkvæðamestir í liði Íslands voru Janus Daði Smárason með átta mörk, frábær leikur hjá Janusi í dag. Gísli Þorgeir var ekkert síðri í dag og skoraði sjö mörk. Ómar Ingi Magnússon skoraði sex mörk og þá spilaði Bjarki Már Elísson frábæran seinni hálfleik og skoraði fimm mörk. Orri Freyr Þorkelsson spilaði fyrri hálfleikinn og skoraði fjögur mörk. Viktor Gísli Hallgrímsson spilaði allan leikinn í dag og varði 13 bolta og var með 34% markvörslu

Handkastið er í Kristianstad og er umfjöllun væntanleg í hlaðvarpsformi. Næsti leikur Íslands er á sunnudaginn þegar strákarnir okkar mæta Póllandi og hefst leikurinn klukkan 17:00.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top