Janus Daði Smárason (JOHAN NILSSON / TT News Agency via AFP)
Strákarnir okkar unnu sannfærandi þrettán marka sigur á Ítalíu í fyrsta leik sínum á Evópumótinu á föstudagskvöldið, 39-26 eftir að staðan hafi verið 21-12 Íslandi í vil í hálfleik. ,,Janus Daði kom frábærlega inn í leikinn. Hann var valinn maður leiksins og fékk knús og viðurkenningu frá forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur eftir leik. Átta mörk úr níu skotum og spilar í Kempa skóm," opnaði Stymmi klippari umræðuna um frammistöðu Janusar Daða í leiknum í gær áður en Sérfræðingurinn tók til máls. ,,Þetta er enn einn sigurinn fyrir Kempa fjölskylduna og AB Sportvörur á þessu tímabili. Janus var frábær og með frábæra innkomu. Hann kom vel inn í vinstri bakvörðinn fyrir Elliða sem var í töluverðu basli í leiknum. Janus var nánast óstöðvandi. Þetta er svolítið leikur Janusar Daða, hann átti glórulausan tapaðan bolta í fyrri hálfleik þar sem við fengum hraðarupphlaup í bakið. Þetta er svolítið, ætlaru að vera þessi týpa af leikmanni eða ætlaru að vera sú týpa sem Haukur Þrastarson er með íslenska landsliðinu. Hann fer í ákveðið fucking mode og lifir með því og kemst upp með ýmislegt en á sama tíma getur það kostað nokkra tapaða bolta." ,,Umræðan um Janus verður kannski önnur eftir leik gegn Ungverjum eða þessum stærri þjóðum sem við eigum eftir að mæta á mótinu. En þetta var týpískur leikur sem Janus Daði blómstrar. Það er engin pressa og hann er geggjaður. Rétta orðið er að Janus Daði er kaldur, ískaldur og í svona leik virkar það en síðan getur það kostað okkur í jafnari leik,” sagði Sérfræðingurinn meðal annars um frammistöðu Janusar Daða í sigrinum á Ítalíu. Ísland mætir Póllandi í öðrum leik sínum á Evrópumótinu í dag klukkan 17:00. Handkastið verður á svæðinu og gerir upp leikinn í hlaðvarpsþætti sínum strax í kjölfarið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.