Við erum ekki að tala um einhverjar dúkkulísur út í bæ
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Haukur Þrastarson (Sævar Jónasson)

Strákarnir okkar unnu sannfærandi þrettán marka sigur á Ítalíu í fyrsta leik sínum á Evópumótinu í gærkvöldi, 39-26 eftir að staðan hafi verið 21-12 Íslandi í vil í hálfleik.

Haukur Þrastarson fékk örfáar mínútur í leiknum en hann kom inná, síðustu 10 mínútur leiksins þegar sigurinn var í höfn og einungis forgangsatriði að spila síðustu mínútur leiksins. Haukur skoraði eitt mark í leiknum en sat annars á bekknum og fylgdist með liðsfélögum sínum leika við hvern sinn fingur á vellinum.

Rætt var um hlutverk Hauks í uppgjörsþætti Handkastsins sem tekinn var upp í Kristianstad strax að leik loknum. Þar opnaði Stymmi klippari á umræðuna um Hauk og bað Sérfræðinginn að fara aðeins í gegnum það hver staða Hauks væri í íslenska landsliðinu.

,,Fyrir mánuði síðan vorum við að lesa fyrirsagnir um það hversu góður Haukur Þrastarson væri búinn að vera í Rhein-Neckar Lowen, stoðsendingarhæsti leikmaður þýsku úrvalsdeildarinnar, búinn að skora yfir 100 mörk og allt það. En að spila með íslenska landsliðinu er allt önnur skepna. Ég tók viðtal við Janus Daða í aðdraganda mótsins þar sem hann kom með ágætis punkt sem maður getur alveg gefið sér en við höfum kannski ekki mikið pælt í,“ sagði Sérfræðingurinn og bendir á að í aðdraganda stórmóts er liðið að æfa saman ákveðna taktík. Leikmenn, þjálfarar og allir sem eru að vinna í leikgreiningu fyrir landsliðið sjá alveg hverjir eru on og hverjir eru off. 

,,Það virðist sem svo að Haukur sé ekki að finna fjölina sína, ekkert endilega í leikjunum heldur, það virðist vera sem svo að ef Haukur væri on á æfingum og væri að finna taktinn með Janusi eða Gísla þá væri hann að spila meira. Ég held að Snorri Steinn og Arnór Atlason séu ekki að dæma menn út frá einhverjum æfingaleik í aðdragnda móts. Þetta snýst mikið um það hvað gerist á æfingunum. Það er erfitt að breyta þessu núna, þeir eru ekki að fara æfa mikið núna eftir að mótið er hafið. Mér finnst mjög sennilegt að Haukur Þrastarson verði í þessu hlutverki út mótið nema einhver af þessum aðalleikmönnum eigi mjög dapran leik.”

,,Þetta er íslenska landsliðið, þú ert ekki að gefa einhverjum leikmönnum mínútur ef þú þarft þess ekki. Janus þurfti ekki að spila allar þessar mínútur en menn eru í lazer fókus og eru að brillera og þá ertu ekkert að taka þá útaf bara til að gefa einhverjum öðrum tækifæri til að snerta gólfið. Haukur fær 10 mínútur og við erum 10-12 mörkum yfir, ég hefði sennilega ekki látið Hauk inná. Leikmaður sem hefur verið að spila í Meistaradeildinni undanfarin tímabil og er í þýsku úrvalsdeildinni í dag, hann þarf ekki að snerta gólfið. Við erum ekki að tala um einhverjar dúkkulísur út í bæ, þetta eru atvinnumenn í íþróttinni. Ég er á því að það væri betra fyrir okkur ef Haukur þyrfti að þjást meira og sitja á bekknum og fengi síðan tækifæri þegar við þurfum á honum að halda. Þessar 10 mínútur gegn Ítalíu gerðu sennilega ekki mikið fyrir hann upp á framhaldið. Að fá þessar ruslmínútur, þetta er bara verra heldur en að sleppa því,” sagði Sérfræðingurinn, Arnar Daði meðal annars um stöðu Hauks Þrastarsonar hjá íslenska landsliðinu.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top