
HANDBALL-EURO-MEN-HUN-POL (Johan Nilsson/TT / TT NEWS AGENCY / AFP) / Sweden OUT / SWEDEN OUT
Pólverjinn Wiktor Jankowski verður upp í stúku þegar pólska landsliðið mætir íslenska landsliðinu í annarri umferð riðlakeppni Evrópumóts karla í handknattleik í Kristianstad Arena á morgun klukkan 17. Jankowski fékk beint rautt spjald fyrir grófa óíþróttamannslega framkomu í viðureign Pólverja og Ungverja í gærkvöld. Aganefnd Evrópumóts karla lítur brot Pólverjans alvarlegum augum. Jankowski missir ekki bara af viðureign Íslands og Póllands heldur verður hann einnig í banni þegar Pólverjar mæta Ítölum í þriðju og síðustu umferð riðlakeppninnar á þriðjudaginn.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.