Einar Þorsteinn verri í dag en í gær – Enginn nýr leikmaður á leiðinni
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Einar Þorsteinn Ólafsson (Sævar Jónasson)

Einar Þorsteinn Ólafsson var ekki í leikmannahópi Íslands í fyrsta leik liðsins á Evrópumótinu í gær er liðið vann Ítalíu með þrettán marka mun. Einar Þorsteinn er að glíma við veikindi.

Snorri Steinn sagði í viðtali við Handkastið að staðan á Einar væri verri í dag en í gær. Aðspurður sagðist Snorri ekki vera fara kalla inn nýjan leikmann í íslenska hópinn fyrir leikinn gegn Póllandi á morgun. Gera má ráð fyrir því að Snorri Steinn verði með sama leikmannahóp í leiknum á morgun og var gegn Ítalíu.

,,Staðan á Einari Þorsteini var ekki nægilega góð í morgun. Það var eins og hann væri að braggast í gær og við reiknuðum með honum betri í dag. Síðan sló honum eitthvað meira niður. Ég ætla ekki að segja að hópurinn sé þunnur, við náum í lið og það er ekkert vesen. Við erum að fara á æfingu og það getur alltaf eitthvað gerst. Þegar maður er á svona móti eru endalausar vangaveltur en það er enginn nýr leikmaður á leiðinni," sagði Snorri Steinn Guðjónsson þjálfari íslenska landsliðsins í viðtali við Handkastið í Kristianstad í morgun áður en landsliðið fór á æfingu.

Landsliðið undirbýr sig nú fyrir leikinn gegn Pólverjum í 2. umferð riðlakeppni Evropumótsins sem fer fram á morgun klukkan 17:00 í Kristianstad. Handkastið er á svæðinu og gerir upp leikinn í hlaðvarpsþætti sínum strax að leik loknum.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top