Janus Daði Smárason (JOHAN NILSSON / TT News Agency via AFP)
Janus Daði Smárason var maður leiksins í gær þegar strákarnir okkar unnu frábæran sigur á Ítalíu. Janus Daði skoraði átta mörk og var atkvæðamestur í liði Íslands í gær. Ítalía spilaði með vörn sína framarlega í gær á móti Íslandi og í svokallaðri 3-3 vörn. Janus var spurður hvernig honum hafi liðið í leiknum í gær. ,,Þetta ætti að henta okkur en stundum er þetta frábært og stundum situru bara fastur. Það vantaði upp á endurtekningar en hitt kunnum við upp á tíu en þetta er aðeins nýtt með staðsetningar og annað." Pólland bíður Íslands á morgun þegar liðin mætast á Kristianstad Arena og hefst leikurinn klukkan 17:00 og Janus segir að það verði allt annar leikur. ,,Þeir eru töluvert stærri og þyngri með spænskan þjálfara. Þeir vinna mikið með línu og blokkir og eins er þjálfarinn nýtekinn við Pólverjum og þeir eru í einhverju ferli svo það er kannski ekkert alltof mikið efni til að undirbúa sig en við mætum eins klárir og hægt er." Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að neðan.
,,Gott að byrja mótið vel. Ég held að við höfum spilað bara þokkalega yfir allar mínútur leiksins. Við fengum allir start á mótinu. náðum að dreyfa aðeins mínútum og ég held að það séu bara allir glaðir í dag."

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.