Melvyn Rochardson (Damir SENCAR / AFP)
Þremur leikjum var að ljúka á Evrópumeistaramótinu í Noregi, Svíþjóð og Danmörku en leikið var í A, C og E riðlum. Austurríki og Spánn mættust í fyrsta leik dagsins í A-riðli og vann Spánn fimm marka sigur 25-30 en staðan í hálfleik var 12-19 fyrir Spánverjum, næstu leikir liðanna er að Austurríki mætir Serbum á meðan Spánverjar mæta Þjóðverjum. Úkraína og Frakkland mættust í fyrsta leik dagsins í C-riðli og vann Frakkland 26-46 en staðan í hálfleik var 12-24 fyrir Frakkland, næstu leikir liðinna er að Úkraína mætir Tékklandi á meðan Frakkar mæta Noregi. Króatía og Georgía mættust í fyrsta leik dagsins í E-riðli og vann Króatía 3 marka sigur 32-29 en staðan í hálfleik var 15-14 fyrir Georgíu, næstu leikir liðanna er að Króatar mæta Hollandi á meðan Georgía mætir Svíum. Úrslit dagsins: Austurríki-Spánn 25-30 Úkraína- Frakkland 26-46 Króatía-Georgía 32-29

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.