Megum ekki detta niður á þeirra plan
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Janus Daði Smárason (JOHAN NILSSON / TT News Agency via AFP)

Íslenska landsliðið mætir Pólverjum í öðrum leik liðsins á Evrópumótinu í handbolta í dag en íslenska landsliðið vann Ítalíu í fyrsta leik sínum.

Einar Örn Jónsson, íþróttafréttamaður á RÚV, segir að við megum búast við allt öðruvísi leik en gegn Ítölum. ,,Við megum búast við meira hefðbundnum handbolta en gegn Ítölum, þeir eru með stóra og mikla leikmenn og góðar skyttur. Það ætti að henta okkur betur en munurinn á Íslandi og Póllandi í kílóum og sentimetrum er talsverður og við megum ekki detta niður á þeirra plan í kvöld og verðum að keyra upp hraðann."

Pólverjar fengu nýjan spænskan þjálfara eftir heimsmeistaramótið í fyrra og segir Einar að hann sé ennþá að reyna að koma sínum áherslum í liðið. ,,Það mun eflaust taka Pólverjana tíma að venjast spænska skólanum en það eru virkilega góðir leikmenn í hópnum þó þeirra helstu stjörnur vanti."

Einar segir að hann skynji að stemmninginn í hópnum sé virkilega góð. ,,Það er þessi blanda sem maður vill hafa innan liða, þeir eru rosalega einbeittir án þess að séu þyngsi. Það er létt yfir mönnum en rosalegur fókus"

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top