Haukur Þrastarson (Tom Weller / AFP)
Ísland vann annan stórsigur þegar liðið lagði Pólland 23-31. Haukur Þrastarson stimplaði sig rækilega inn í íslenska liðið og lék við hvern sinn fingur í sóknarleiknum í dag. Ýmir Örn, Elvar og Elliði voru límið í vörninni og frábært svar Elliða fyrir dapra frammistöðu gegn Ítalíu. Önnur góð frammistaða í riðlinum og vonandi heldur það áfram. Einkunnir Íslands má sjá hér:
Orri - 8
Gísli - 7
Ómar - 6
Elliði - 7
Óðinn - 7
Elvar - 6
Ýmir - 8
Viktor - 6
Björgvin - 5
Janus - 6
Viggó - 7
Arnar Freyr - 5
Haukur - 8

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.